picture12.jpg

Suðursvæði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fjallahópur Ríkis Vatnajökuls

Í klasanum Ríki Vatnajökuls er unnið að því að gera Sveitafélagið Hornafjörð að einu mesta fjallamennskuhéraði á landinu, þ.e.a.s. markviss vinna að fræðslu fyrir heimamenn, markaðssetningu o.fl. Fyrsta mál á dagskrá er að skrá niður allar klifur-, ísklifur- og fjallgönguleiðir á svæðinu. Hugmyndin er að taka niður gps punkta af leiðunum, skrá niður erfiðleika gráður þeirra og gera aðgengilegt á veraldarvefnum. Þannig er tryggt að góðum og réttum upplýsingum miðlað til ferðamanna og stuðlað að auknu öryggi þeirra. Þessi hluti fjallaverkefnisins verður unnin í samvinnu Fræðasetur Háskóla Íslands á Hornafirði, Öræfaferða, Íslenskra fjallaleiðsögumanna og Ísalp.

Framhaldsskóli – Austur Skaftafellssýslu

Verkefni framhaldsskólans eru af fernum toga. Í fyrsta lagi verður nemendum boðið upp á grunnnám í fjallamennsku. Námskeiðið má jafnframt þróa á þann hátt að það veiti ákveðin grunnréttindi í fjallaleiðsögn. Nemendur auka þá við þekkingu sína á svæðinu og jafnframt er námskeiðið grundvöllur fyrir frekara námi á þessu sviði. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn. Annað verkefnið snýr að náttúrufræðinámi, þ.e. jarðfræði, náttúrufræði og líffræði. Í nýrri námsskrá verða útfærð þrjú stig náttúrufræðináms sem krefst vinnu á vettvangi. Í verkefninu er því um að ræða styttri ferðir í nágreni Hafnar, nokkurra sólarhringa vettvangsferðir og sjálfstæða úttekt nemenda eða rannsókn á t.d. náttúrufari, gróðri eða fuglum. Eftir að verkefnunum lýkur hafa safnast saman góðar upplýsingar um svæðið. Þetta verkefni verður unnið í samvinnu við aðra framhaldsskóla innan NEED verkefnisins og svæðin sem heimsótt verða flest innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Þriðja verkefni framhaldsskólans er umhverfisnám þar sem frekari þróun verður á því námi sem nú þegar er til staðar. Hér verður unnið með mastersnemanum Hildi Þórsdóttur og að líkindum standa nemendur uppi eftir námskeiðið með aukna umhverfisvitund og hafa grunn fyrir frekara nám á þessu sviði. Síðasta verkefni framhaldsskólans hefur hlotið vinnuheitið Félagslíf og ferðaþjónusta en það byggist upp á því að nemendur kynnist starfsemi ferðaþjónustuaðila á svæðinu og auki þannig við vitund sínu um umhverfið, þá bæði umhverfis- og atvinnulega séð. Ríki Vatnajökuls verður í samstarfi við framhaldsskólann í þessu verkefni.  Fyrsta ferðin kallast Helgi í Hofsnesi og er henni nú lokið. Þann 6. nóvember 2009 fóru 15 nemendur frá FAS í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að fara á námskeið í ísklifri. Farið var af stað seinni part föstudags og námskeiðið hófst þá um kvöldið með fyrirlestri og grunnkennslu í hnútum og hvernig klifurbúnaður virkar. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Laugardagsmorguninn var tekinn snemma. Byrjað var að æfa klifur og var það gert í Hnappavallaklettunum sem er eitt besta klifursvæði landsins. Þegar allir voru orðnir þrælklárir var farið upp á jökul þar sem klifrað var í ís og almenn tækni við jöklagöngu var kennd.
Sunnudagurinn var einnig tekinn snemma og farið í sprungubjörgun, fyrst var farið yfir grunnatriðin í Skaftafelli en að því loknu var farið upp á jökul í alvöruna. Þá sigu krakkarnir ofan í sprungu og þeir sem uppi voru þurftu að nota það sem þeir höfðu lært til þess að bjarga hinum upp úr sprungunni. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði og við getum öll verið stolt af þessu hóp.
Önnur ferð mun kallast Fjórhjólaferðin og væri farin með fyrirtækinu Fjöruferðir, margskonar útfærslur koma til greina en líklega verður ferðin byggð upp sem fræðsluferð.  Allir nemendur fá samantek um svæðið sem inniheldur fróðleik um það svæðið, t.d. gróður, sögu og fleira í þeim dúr. Í ferðinni vinna nemendur svo verkefni upp úr lesefninu.  Ferðin verður byggð upp sem leikur og nemendur fá stig fyrir hverja rétta spurningu en einnig verða þrautir sem byggjast á öðru. Í lokin stendur svo einn uppi sem sigurverari.  Síðasta ferðin kallast Öræfaferð. Ferðin tæki einn dag og farið með rútu út í öræfi, þar yrði farið út í Ingólfshöfða með  ferðaþjónustuaðilum á Hofsnesi. Nemendur fengju fræðslu um sögu  og dýralíf svæðisins og það sama yrði á jökulsárlóninu þar sem farið yrði í siglingu. Ferðin er hugsuð einnig sem ljósmyndasamkeppni en þemað væri náttúra og saga. Ljósmyndasýning yrði í framhaldi á ferðinni og fenginn yrði ljósmyndari til að skoða þær og finna vinningshafa.

Fuglaskoðun á SA-landi

Á Höfn og Djúpavogi er nú þegar hafið samstarf um fuglaskoðun. Aðkoma NEED verkefnisins í því samstarfi snýr helst að gerð korts eða bæklings þar sem merktir eru inn allir helstu fuglaskoðunarstaðir á svæðinu. Þá er einnig hugsanlegt að fræðsluskilti verði útbúin á þeim stöðum. Ábyrgð á þessum hluta verkefnisins er í höndum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði ásamt ýmsum hagsmunaaðilum á Djúpavogi, í sveitarfélaginu Hornafirði og Ríki Vatnajökuls.Kortið er nú tilbúið og aðgengilegt á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.

Grunnskóli Hornafjarðar

Í Grunnskóla Hornafjarðar er unnið að því að samræma vettvangsferðir nemenda á öllum stigum. Verkefnið snýst því um að sköpuð verði heildstæð sýn yfir vettvangsferðirnar og horft á þær sem eina heild þar sem hver ferð byggir á annari. Þannig verða ferðirnar markvissari. Heimsótt verða áhugaverð svæði  Vatnajökulsþjóðgarðs og lögð áhersla á að auka þekkingu nemenda, m.a. í jarðvísindum. Elstu nemendur skólans hafa nú þegar farið í ferð í tengslum við þetta verkefni þar sem haldið var inn á Lónsöræfi. Fyrirhugað er að endurtaka þessa ferð með smávægilegum breytingum næsta haust.

Guðlaug Úlfarsdóttir vinnur nú að mastersverkefni um útinám og ætlunin er að verkefni grunnskólans og Guðlaugar verði unnin í sameiningu.

Hagnýt menningarmiðlun

Námskeið var haldið á Höfn fyrir mastersnema HÍ í hagnýtri menningarmiðlun. Fjallað var almennt um menningar- og fræðslutengda ferðaþjónustu og hvaða hugmyndafræði býr þeim að baki. Einnig var rætt um tengsl þeirra við sjálfbæra/visthæfa ferðaþjónustu og athugað að hversu miklu leyti markmið þeirra geti farið saman. Megináhersla var lögð á miðlun upplýsinga og þekkingar sem varðar annars vegar menningu og sögu og hins vegar náttúru og umhverfi, svo og efni sem skarast á milli þessara sviða. Fjallað var um helstu leiðir sem koma til greina við miðlun af þessum toga og rætt um kosti þeirra og galla, m.a. út frá ólíkum markhópum. Hugað var að þeim viðmiðum og gæðastöðlum sem æskilegt sé að fylgja í menningar-, fræðslu- og umhverfistengdri ferðaþjónustu. Fjallað var um þýðingu slíkrar ferðaþjónustu fyrir ímynd svæða, bæði eins og hún snýr að heimamönnum og aðkomumönnum. Tekin voru nokkur raundæmi úr héraðinu til skoðunar og greiningar, þ.á m. gestastofa Þjóðgarðsins í Skaftafelli, Þórbergssetrið á Hala og Jöklasýningin á Höfn. Einnig var fjallað um miðlun á sagnaarfi Austur-Skaftafellssýslu. Námskeiðið var unnið í samvinnu Fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, Háskóla Íslands og ýmsa ferðaþjónustuaðila á svæðinu.

Hoffell

Fyrirhugað er að byggja upp jarðfræðislóð við Hoffell. Hugsanlega verður útbúið kort fyrir ferðamenn þar sem jarðfræði er komið vel til skila. Þá er fyrihugað að vinna ýmsa undirbúningsvinnu fyrir fræðsluefni er aðgengilegt verður í Hoffellsstofu en hún mun rísa í náinni framtíð. Nánari útfærsla á verkefninu liggur þó ekki fyrir.

Jarðfræðikort í Ríki Vatnajökuls

Fyrirhugað er að útbúa kort þar sem áhugaverðir jarðfræðistaðir verða merktir inn á og þannig gerðir aðgengilegir fyrir ferðamenn. Kortið verður byggt upp á sama hátt og fuglabæklingurinn er áður hefur verið lýst. Sambærileg kort verða útbúin fyrir öll samstarfslönd NEED verkefnisins. Nánari útfærsla liggur ekki fyrir.

Landfræðilegur gangagrunnur

Áhersla hefur verið lögð á að útbúin verði landfræðilegur gagnagrunnur fyrir sveitarfélagið Hornafjörð þar sem jarðfræði verður megin þemað. Háskólasetrið á Hornafirði vinnur nú að þessu verkefni í samráði við sérfræðinga.  Drög að þessum vef hefur nú verið gerður aðgengilegur á netinu undir léninu www.need.is/iceland. Fyrirhugað er þó að endurbæta vefinn og gera hann notendavænni.

Leikskólinn Krakkakot

Á leikskólanum Krakkakoti er unnið eftir heilsustefnu Urðarhóls en hún gengur út á hreyfingu, næringu og listir en að auki leggur Krakkakot áherslu á umhverfi og náttúru.  Börnin læra m.a. að flokka rusl og hugsa um matjurtagarð. Á Krakkakoti eru hugmyndir að tvennskonar verkefnum. Annars vegar að fara með nemendur skólans í ferðir um nágrennið og greina plöntur. Áfram verður svo unnið með plönturnar um veturinn. Það verkefni verður unnið í samstarfi við Skógræktarfélag Austur- Skaftfellinga og fyrirtækið Náttúrulega ehf sem staðsett er á Höfn. Hitt verkefnið snýst um að þróa áfram umhverfismenntun fyrir nemendur en vísir er af þess konar fræðslu á leikskólanum nú þegar. Þar verður unnið með Grunnskóla Hornafjarðar, öðrum leikskólum hér á Íslandi og ef til vill erlendum leikskólum.Þá er einnig áætlað að fara með hóp nemenda í vettvangsferð að Kvískerjum í Öræfum vorið 2010. Nánari útfærsla á þeirri ferð liggur þó ekki fyrir.

Umhverfis- og skipulagsþing í Sveitarfélaginu Hornafirði

Á haustdögum 2009 var haldið málþing um umhverfis- og skipulags í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þingið var tvískipt þar sem fyrri daginn var horft til ferðaþjónustunnar á landinu í heild sinni og gæði umhverfis- og skipulagsmála rædd. Frummælendur komu úr ýmsum áttum og má þar m.a. nefna Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing, Guðmund H. Gunnarsson, gæðastjóra Matís á Höfn og Berglindi Viktorsdóttur hjá Ferðaþjónustu bænda. Seinni dag málþingsins var unnið með Ríki Vatnajökuls þar sem tveir vinnuhópar voru starfsræktir. Rætt var um umhverfisleg, efnahagsleg og samfélagsleg viðmið & markmið fyrir þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls, sem og samskipti Ríkis Vatnajökuls við Vatnajökulsþjóðgarð. Uppúr niðurstöðum vinnuhópanna er áætlað að vinna Gæða og umhverfisstefnu fyrir klasann. 

Að málþinginu stóðu Háskólasetrið á Hornafirði, Ríki Vatnajökuls og Sveitafélagið Hornafjörður.

Vatnajökulsþjóðgarður – Skaftafelli

Þrenn verkefni eru fyrirhuguð í Skaftafelli. Í fyrsta lagi hefur þjóðgarðsvörður áhuga á því að halda staðháttanámskeið fyrir landverði á svæðinu en þannig má auka þekkingu þeirra á svæðinu. Allir landverðir fara í gegnum námskeið þar sem þeir læra um það hvað felst í því að vera landvörður, einnig læra þeir undistöðuatriði í náttúrutúlkun sem og skyndihjálp. Aftur á móti er ekki gerður greinarmunur á landvörðum er starfa í Skaftafelli eða Jökulsárgljúfri þó landslagið sé ólíkt. Þannig vantar oft töluvert upp á staðháttakunnáttu landvarða. Úr þessu má bæta með námskeiði eins og því sem hér um ræðir. Þar með er líklegra að landverðirnir miðli réttum og góðum upplýsingum um staðhætti til ferðamanna. Vilji er fyrir því að útbúa fræðslustíg og setja upp fræðsluskilti í Skaftafelli. Hugmyndin er að setja upp skilti við Vatnadrekann svokallaða og útskýra mikilvægi hans áður en jökulárnar voru brúaðar í Öræfunum. Annað skilti á að fara upp við Skaftafellsjökul þar sem farið er yfir sögu hans og jarðfræði. Fræðslustígurinn verður hringleið frá þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli um staði sem hafa sögulegt og menningarlegt gildi.Síðasta verkefnið sem fyrirhugað er í Skaftafelli er þróun á fræðsluefni fyrir börn er heimsækja þjóðgarðinn, bæði gesti sem heimsækja þjóðgarðinn yfir sumartímann og eins skólahópa sem koma í lengri heimsóknir. Hugsanlegt er að fá kennaranema í samstarf við þennan hluta verkefnisins.
 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður