Picture1b.jpg

Vestursvæði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fræðslufundaröð

Haldnir verða fjórir til sex fundir um efni er varðar samspil manns og náttúru.  Á fundunum verður m.a.  fjallað um áhrif jökulvatna á lífríki sjávar, framvindu gróðurs. Markmið fundanna verður að fræða íbúa Skaftárhrepps um náttúruna í víðu samhengi, með þjóðgarðinn í huga.

Fræðslustígur um Klausturheiði

Lagður verður fræðslustígur sem leið liggur frá Hunkubökkum í vestri að Bjarnarklifi í austri.  Þaðan um Hæðargarðsland og Landbrotshóla að Hunkubökkum uns hringnum er lokað.Meginþema er jarðfræðin; landmótunin, en þetta svæði er eins og risastór kennslustofa sem nær yfir drjúgan hluta íslenskrar jarðfræði.  Á póstum á leiðinni verða settar upp a.m.k. fjórar gegnumgangandi verkefnalínur, en hver þeirra mun tengjast námsskrá ákveðins aldurshóps; leikskóla- grunnskóla- (tvær+) og framhaldsskóla- (fullorðins) hóp.  Auk skólahópa mun gagnvirkum verkefnunum ætlað að höfða til almennra ferðamanna, fjölskylda o.s.frv.  Meðal viðfangsefna verður landmótun, hraunrennsli, jarðvegseyðing, landris, gervigígar og svo mætti áfram telja.  Vel má hugsa sér að hægt verði að velja ákveðið þema og þannig verði mismunandi „pakkar“ til.Vegalengdin er um 15 km og má byrja og enda hvar sem er, þannig að stígurinn nýtist gestum gistinstaðanna á svæðinu, sem raðast ágætlega um hringinn.Stígurinn mun vera hannaður þannig að ganga megi bút og bút, en einnig verða settar upp minni „slaufur“ út frá aðalleiðinni, sem þjónað geta þörfum þeirra sem vilja ganga skemmri vegalengdir.Verið er að vinna nýja námsskrá fyrir framhaldsskólana.  Þar verður væntanlega svigrúm til að taka ákveðin fög fyrir í t.d. 2-3 daga ferðum.  Er hugmyndin að nýta þennan möguleika og setja upp jarðfræði áfanga utan um fræðslustíginn, en auk hans má gera ráð fyrir að hóparnir fari í vettvangsferð í t.d. Lakagíga og víðar.  Er þá hugsunin að geta boðið skólahópum upp á að koma í Skaftárhrepp og ljúka þar slíkum áfanga.  Auk þess að henta skólakerfinu vel er hugmyndinni ætlað að styðja sérstaklega við ferðaþjónustuna á jaðartímum.Tekið skal fram að þetta fræðslustígsverkefnið er fjórþætt og vegna mismunandi lína í þyngd verkefna má gjarnan líta á þau sem fjögur aðskilin til að átta sig á umfanginu.Kirkjubæjarstofa mun sjáum framkvæmd á fræðslustígnum í samvinnu við hagsmunaaðila.

Námsstefna um náttúrutúlkun og útikennslu

Stefnt er að því að halda námsstefnu um náttúrutúlkun og útikennslu fyrir leikskóla- og grunnskólakennara og aðra hagsmunaaðila. Þar gefst kennurum tækifæri til að ræða saman um hin ýmsu verkefni auk þess að þeir auki við þekkingu sína í náttúrutúlkun. Mun Fræðasetur Háskóla Íslands standa fyrir námsstefnunni í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Fyrirhugað er að námsstefnan verði haldin haustið 2010.

Sjóbirtingssetur

Í sjóbirtingssetri við Tungulæk verður fræðandi ferðaþjónusta um vötnin, fæðukeðjuna, einkenni tegunda og þess háttar, byggt á áratuga rannsóknum og reynslu forsprakka setursins. Marmið Sjóbirtingssetursins er að fræða gesti um sjóbirtinginn. Jóhannes Sturlaugsson mun sjá um verkefnið. 

Útivistarnámskeið fyrir elstu nemendur grunnskóla

Haldnir verða fjórir fræðslufundir í júní (gjarnan utandyra), þar sem farið verður í grunnatriði ferðamennsku og rötunar.  Í framhaldinu verður farin tveggja nátta gönguferð um afréttir Skaftárhrepps.  Þrjár mismunandi leiðir farnar, ein á ári, þannig að hver árgangur kynnist mismunandi svæðum í heimabyggð.  Í ferðunum verður, auk ferðamennskunnar, hugað að jarðfræðinni eftir því sem við á (hraungosi, landmótun jökulár, sprungugosum, móbergshryggjum, megineldstöðvum, heitum lindum, útfellingum.... og svo má áfram telja).  Sýnt hefur verið fram á að fræðsla af þessu tagi, sem kalla má áttagafræði, tengir unglingana heimaslóðum sínum sterkari böndum, sem getur stuðlað að því að þau velji sér að búa þar áfram.  Þá getur ferðamennskuþekkingin nýst þeim, ásamt öðru, við leiðsögn ferðamanna um hálendisjaðarinn.
 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður