picture14.jpg

Markmið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í NEED- verkefninu er lögð höfuðáhersla bæði á þróun umhverfismenntar og á uppbyggingu fræðandi ferðaþjónustu á friðlýstum svæðum. Einnig er ætlunin að leita leiða til að aðstoða heimamenn við að auka þekkingu sína á umhverfismálum og efla færni þeirra til að sinna störfum sem byggja á tilvist friðlýstra svæða. Markmið NEED- verkefnisins er að vernda náttúru og menningararf samhliða því að skapa ný, sjálfbær starfstækifæri í dreifðum byggðum þar sem atvinnuþróun hefur víða átt erfitt uppdráttar. Verkefnið mun einnig auka félags- og mannauð með því að tengja saman fólk í þéttbýli og dreifbýli, í gegnum vinnu að sameiginlegum viðfangsefnum í mennta- og ferðamálum.

Markhópar NEED- verkefnisins eru aðallega fjórir:

  1. Leikskóla- og grunnskólanemar
  2. Framhaldsskóla- og háskólanemar
  3. Íbúar og fyrirtæki í grannbyggðum
  4. Ferðamenn, erlendir og innlendir
 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður