
Mánudaginn 26. apríl stendur til að hópur frá Íslandi haldi til Írlands á síðustu alþjóðlegu ráðstefnu NEED verkefnisins. Gert er ráð fyrir að ráðstefnugestir verði um 40 manns en þar af eigum við Íslendingar 19 fulltrúa. Þar á meðal er ýmsir ferðaþjónustu bændur sem og fulltrúar fræðastofnana hringinn í kringum Vatnajökulsþjóðgarð.
Flogið verður til Shannon á Írlandi og millilent í Lundúnum. Þaðan verður haldið til bæjarins Doolin en þar mun hópurinn gista fimm nætur.
Megin þema ráðstefnunnar er fullorðinsfræðsla og fræðsluferðaþjónusta sem er einnig seinasti verkefnahlutinn sem tekinn verður fyrir í NEED verkefninu.











