Útikennsla og vettvangsathuganir í skólastarfi njóta vaxandi viðurkenningar sem mikilvægar og gagnlegar kennsluaðferðir. Örn Þorleifsson, kennari við Brúarásskóla, bóndi í Húsey á Fljótsdalshéraði og landgræðsluverðlaunahafi, hefur skipulagt vettvangsferð og útikennslu um jarðfræði, landgræðslu og menningu frá Kollumúla í Jökulsárhlíð til Möðrudals. Markmið verkefninsins er að nemendur öðlist skilning á landinu, jarðfræði og lífríki er viðkemur heimabyggð og tengist búsetu Íslendinga. Einnig að þeir öðlist heilbrigt viðhorf til nýtingar og verndunar lands, læri að umgangast landið og þykja vænt um það. Nemendur eiga að þjálfast í að lesa landið og geta útskýrt hvað er um að vera á hverjum stað, eins og hvort um landeyðingu eða landbætur er að ræða.
Föstudaginn 28. maí síðastliðinn fóru krakkarnir í 5. og 6. bekk Brúarásskólans í þessa dagsferð með Erni og umsjónarkennarum sínum, Idu Ceciliu Bergman. Í síðari helmingi ferðarinnar var héraðsfulltrúi Landgræðslunnar, Guðrún Schmidt, ásamt Ölvari Styrmissyni meðferðis. Hann var í starfskynningu hjá Landgræðslunni.
Á leiðinni frá Kollumúla að Möðrudal voru skoðuð og rædd ýmis jarðfræðileg fyrirbæri; hvað er eldstöð, myndun Héraðssands og hvers vegna renna ár og fljót í stórum sveigum á jafnsléttu, Sleðbrjótsmelar, tjarnirnar við Breiðumörk, Hauksstaðahólar, Mælishóll og Skessugarður svo eitthvað sé nefnt. Rætt var um jarðvegs- og gróðureyðingu og mögulegar aðgerðir til landbóta, sagðar sögur af atburðum á svæðinu og rætt um lifnaðarhætti og menningu. Töluverð uppgræðsla er á þessari leið eins og á Hjarðarhagaaurum og við Sænautasel sem nemendur skoðuðu. Í Möðrudal slóst svo Vernharður Vilhjálmsson, bóndi og landgræðsluverðlaunahafi með í hópinn til að sýna nemendum hvað hann hefur verið að gera til að græða upp landið sitt.
Nemendur höfðu með sér handhægar verkefnabækur sem notaðar eru við útikennslu í skólum á Héraði. Þar skráðu þeir það sem fyrir augun bar og voru hvattir til þess að mynda sér eigin skoðanir. En í haust verða bækurnar teknar upp og námið metið.
Eftir langan dag var gott að fá fjallakjötsúpu í Möðrudal áður en lagt var á stað heim. Það leikur engin vafi á að nemendur hafi lært heilmargt í þessari ferð og einnig haft gaman af.
Næsta haust er svo áætlað að fara með nemendur úr 9. og 10. bekk í tveggja daga vettvangsferð með tjaldgistingu í Möðrudal.
Þetta verkefni hefur fengið styrk frá NEED (Northern Environmental Education Development project). Það er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni um uppbyggingu náttúruskóla og umhverfismenntar á norðurslóðum, styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Vonandi er þetta verkefni komið til að vera og að svipuð verkefni verði fastir liðir í fleiri skólum landsins.












