picture13.jpg

Verkefni

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Starfssvæði NEED verkefnisins hér á Íslandi er Vatnajökulsþjóðgarður og nágranna byggðarlög. Á öllum fjórum rekstrarsvæðum þjógarðsins hafa verið starfræktir samstarfshópar (klasar) sem vinna að verkefninu.

NEED verkefnið í heild sinni mun standa til ársloka 2010 og eru verkefnin því háð tímaramma. Æskilegt er að verkefnin hafi ákveðin og mælanleg markmið sem verða skoðuð í lok verkefnisins og athugað hvort tilætlaður árangur náðist. Verkefnin mörg og af ólíkum toga þó þau tengist vissulega öll Vatnajökulsþjóðgarði. Auk þess eiga þau það öll sameiginlegt að auka við umhverfisfræðslu hér á landi. Mörg verkefnanna eiga sér hliðstæðu annarstaðar á Íslandi og verður reynt að koma á samstarfi milli þeirra svo hægt verði að læra af reynslu annara. Í framhaldi af þessu verður leitast eftir samstarfi við svipuð verkefni í öðrum samastarfslöndum. Með samstarfinu má því læra af reynslu annara og gera enn betur.

Fimm þemu eru höfð að leiðarljósi í verkefnunum en þau eru eftirfarandi:
   Þema 1: Jarðfræði
-       Jarðfræðisaga Jarðarinn, myndun Jarðar, samsetning, tegundir jarðefna
-       Jarðhreifingar s.s. plötukenningin
-       Saga lífs á Jörðinni
-       Bergtegundir  
  
Þema 2: Landslag
-       Jarðfræðilegur grunnur landslags
-       Breytingar á landslagi, t.d. af völdum áa, jökla, sjávar og veðrunar
-       Plöntur og dýralíf
-       Áhrif á landslagið af mannavöldum; landnám, landnotkun og byggingar 
  
Þema 3: Náttúruvá
-       Eldgos
-       Jarðskjálftar og flóðbylgjur
-       Grjóthrun og aurskriður
-       Hlaup, flóð
-       Geislun
-       Áhrif af völdum loftsteina 
  
Þema 4: Jarðfræðilegir þættir í samfélaginu og sjálfbær nýting
-       Berggrunnur
-       Jarðvegur
-       Málmar og steinefni
-       Jarðefnaeldsneyti
-       Umhverfisáhrif
-       Nýjir orkugjafar, s.s. jarðhiti, sólarorka, sjávarföll og lífrænt eldsneyti
-       Mikilvægi jarðfræðiefna fyrir samfélag manna, fjárhagslegt mikilvægi sem og menningarlegt mikilvægi
-       Sjálfbær nýting á hráum jarðefnum 
  
Þema 5: Loftslags áhrif
-       Náttúrulegar orsakir fyrir loftslagsbreytingum, s.s. breytileg sólarorka, náttúruleg framleiðsla á metangasi
-       Mannlegar orskarir fyrir loftslagsbreytingum, s.s. jarðefnaeldsneyti og skógarhögg
-       Áhrif loftlagsbreytinga á:
     
o    Andrúmsloftið
   o    Hafið
   o    Líffræðilega fjölbreytni
   o    Veðurfar
   o    Samfélag manna, s.s. sjúkdómafaraldra og landbúnað
-       Hvernig má draga úr loftlagsbreytingum?
   o    Innlendar og alþjóðlegar aðgerðir
   o    Daglegt líf
     
o    Umhverfisfræðsla

 

 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður