Norðursvæði
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
Atvinnuþróunarfélagið mun standa fyrir námskeiði og vettvangsferð fyrir ferðaþjónustuaðila um jarðfræðilega sérstöðu Jökulsárgljúfra og Öxafjarðar. Þannig fæst aukin þekking á svæðinu meðal ferðaþjónustuaðila sem þeir geta í framhaldi af því miðlað áfram til ferðamanna. Þar með er kominn hvati fyrir þá til að bjóða uppá skoðunarferðir fyrir ferðamenn. Einnig er hugsanlegt að unnin verði samantekt á efninu fyrir ferðaþjónustuaðila sem þeir geta nýtt sér í kynningu á svæðinu. Námskeiðið mun fara fram í Vatnajökulsþjóðgarði þar sem boðið verður upp á fyrirlestra fyrir hádegi og leiðsagðar vettvangsferðir með sérfræðingum seinnipart dags. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga, Náttúrustofu Norðausturlands og Vatnajökulsþjóðgarð. Náttúrustofa Norðausturlands
Haustið 2007 sóttu forsvarsmenn þessa verkefnis námskeið í útikennslu í Tékklandi og í kjölfar þess fikruðu þau sig áfram með námskeiðshald í útikennslu fyrir kennara. Þessu námskeiði er nú lokið en það var 20 tíma námskeið um útikennslu og útinám, ætlað kennurum í grunn- og framhaldsskólum. Námskeiðið gæti þó nýst fleirum sem sinna fræðslu barna utandyra eins og landvörðum. Námskeiðið var haldið í Ásbyrgi dagana 13. og 14. ágúst 2009. Alls tóku 10 kennarar og 3 landverðir þátt í námskeiðinu en markmiðið var að fá kennara til að tileinka sér útikennslu sem kennsluaðferð. Þema í útikennslunni var myndun og mótun umhverfis og náttúruupplifun.Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is. Skólabúðirnar í Kiðagili
Í Skólabúðunum í Kiðagili er unnið að umhverfisfræðsluverkefni. Verkefnið fjallar fyrst og fremst um hálendis- og fjallaferðir, útivist og náttúru. Byggt verður á grunni „Fjallakofans“ sem er skólabúða verkefni í Kiðagili. Verið er að útbúa viku langt námskeið þar sem farið verður í grunnþætti jarðfræði, landafræði og sögu svæðisins sem blandað verður við þjóðsögur. Unnið verður með kort og áttavita ásamt þeim búnaði sem nauðsynlegur er á fjöllum. Í framhaldi af þessu verður dvalið eina nótt á hálendinu við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem nemendur læra að umgangast hálendið og fjallakofa sem og að dvelja á fjöllum í slíkum skála. Verkefnið verður unnið í samvinnu við fræðasetrið á Svartárkoti. Einnig er fyrirhugað að halda námskeið fyrir ferðaþjónustuaðila á landinu öllu um fræðandi ferðaþjónustu. Námskeiðið verður haldið um mitt ár 2010 en nánari útfærsla liggur þó ekki fyrir. Vatnajökulsþjóðgarður – Jökulsárgljúfrum
Þrenn verkefni eru fyrirhuguð hjá Vatnajökulsþjóðgarði á Norðursvæðinu. Í fyrsta lagi er vilji fyrir því að kynna jarðfræðilega sérstöðu svæðisins fyrir ferðamönnum og efla þannig tækifæri í ferðaþjónustu. Þetta má gera með þróun á umhverfis ratleikjum, þema gönguferðum með áherslu á t.d. jarðfræði. Hugsanlegar afurðir þessa verkefnis eru bæklingar eða annað kynningarefni sem og merkingar á áhugaverðum stöðum innan þjóðgarðsins. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri og ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Annað verkefni Vatnajökulsþjóðgarðs snýr að grunnskólahópum. Fyrirhugað er að hanna kennsluefni um jarðfræði svæðisins og gera aðgengilegt á veraldarvefnum. Nota má efni sem nú þegar hefur verið búið til og bæta við efni í tengslum við Skjálftasetrið á Kópaskeri. Öxafjarðarskóli, Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri og höfundar þess fræðsluefnis sem nú þegar er til verða samstarfsaðilar þjóðgarðsins í þessu verkefni. Seinasta verkefnið er unnið í samstarfi við Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri en þessar stofnanir hafa tekið höndum saman og útbúið kennsluverkefni í tengslum við heimsókn nemenda á þessi tvö fræðslusetur. Verkefnið gengur út á það að kynna fyrir nemendum starfsemi Skjálftaseturs og Gljúfrastofu með sérstakri áherslu jarðskjálfta og þar af leiðandi Kópaskersskjálftann sem skók Norðausturland 13. janúar 1976. Inn í þetta fléttast svo fræðsla um ýmis jarðfræðifyrirbrigði í nágrenni Kópaskers og Ásbyrgis.Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is. Þjóðgarðsskólinn
Þjóðgarðsskólinn er umhverfisfræðslu verkefni Öxafjarðarskóla þar sem byggt er á jarðfræði Jökulsárgljúfra og Öxafjarðar með áherslu á landrek og jarðskjálfta. Með verkefninu er aukið við þekkingu á svæðinu. Hugsanlega verður til kennsluefni um jarðfræði svæðisins ásamt kynningarefni sem unnið verður af nemendum og nýta má til kynningar t.d. í Gljúfrastofu, á Skjálftasetrinu og áhugaverðum áfangastöðum. Verkefnið verður á ábyrgð Öxafjarðarskóla en unnið í samstarfi við Umhverfisskólann Maður og Jörð, Vatnajökulsþjóðgarð og Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri.