picture6.jpg

Austursvæði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Brúarásskóli

Verkefni Brúarásskóla fjallar um útivist og uppgræðslu innan þjóðgarðs. Aðal áhersla verður lögð á uppfok og möguleika á uppgræðslu. Nemendurnir verða fræddir um gróðursvæði og þeim gefin ráð um hvernig stöðva má landeyðingu. Þá munu þeir vinna umhverfis- og samanburðarverkefni. Fyrirhugð er að námskeiðið taki 1-2 daga. Verkefnið verður unnið í samstarfi við íbúa í Möðrudal og Landgræðsluna.

Ferðaleiðir í Vatnajökulsþjóðgarði

Þekkingarnet Austurlands hélt árið 2008 námskeið um svæðisleiðsögn. Hugmyndin er að vinna áfram með það námskeið og þróa fyrir einstaklinga sem vilja fræðast um heimabyggð og leiðsegja ferðamönnum í stuttum ferðum. Verkefnið verður unnið í samvinnu við sérfræðinga í gerð fræðsluefnis og fyrir hugað að námskeiðið verði haldið í mars mánuði 2010.  

Fjalladýrð – Möðrudalur

Á Möðrudal er áhugi á að þróa fræðsluferðaþjónustu fyrir ferðamenn. Áhersla er lögð á nýtingu náttúrunnar í ferðaþjónustu, t.d. í Möðrudal og Kverkfjöllum. Unnið verður að fræðsluefni og markaðssetningu því tengdu. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð, Þróunarfélag Austurlands og Fljótsdalshérað.

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Í menntaskólanum var boðið upp á námskeiðið UMH103 haustið 2009 en þema áfangans var umhverfismál tengd Vatnajökulsþjóðgarði. Hluti áfangans var námsferð um norðursvæði þjóðgarðsins. Áhersla var lögð á jarðfræði svæðisins, s.s. eldvirkni, jöklafræði, ísaldarjarðfræði, jöklaminjar, vatnafar o.fl. Í lok námskeiðsins héldu nemendur námsstefnu þar sem niðurstöður ferðarinnar og rannsóknir tengdar henni voru kynntar. Fyrirhugað er að endurtaka námskeiðið haustið 2010 og þá með ýmsum endurbótum, svo sem tengingu við aðra framhalds- og menntaskóla. Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.

Náttúrustofa Austurlands

Verkefni Náttúrustofunnar kallast Hreindýr í Vatnajökulsþjóðgarði og felst það í samantekt á efni tengdu hreindýrum, s.s. aldursgreining og skoðun á lifnaðarháttum þeirra. Gera á efnið áhugavert og aðlaðandi fyrir ferðamenn í formi bæklings og á veraldarvefnum.

Skriðuklaustur

Fyrirhugað er að efla sérþekkingu heimamanna um söguslóðir á svæðinu. Skriðuklaustur hefur umsjón með verkefninu sem felst í samantekt á efni sem til er um heimaslóðir og það gert aðgengilegt fyrir áhugasama.
 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður