Picture1c.jpg

Fréttir

Ráðsmiðja um fræðandi ferðaþjónustu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ráðsmiðja um fræðandi ferðaþjónustu

Kiðagili, Bárðardal 20. – 22. september 2010

 

Fræðasetrið í Svartárkoti og Kiðagil munu í samstarfi við Háskólasetrið á Hornafirði og NEED verkefnið standa fyrir stefnumóti ferðaþjónustuaðila og fræðimanna víðs vegar af landinu á Kiðagili í Bárðardal dagana 20. – 22. september 2010.

Lesa meira...
 

Haustið 2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

Þá er NEED verkefnið komið á fullt skrið aftur eftir sumarfrí og margt spennandi á prjónunum.

Sem dæmi má nefna að Grunnskóli Hornafjarðar hefur í hyggju að endurtaka námsferð með nemendur 10. bekkjar inn í Kollumúla. Einnig er ráðsmiðja fyrirhuguð í Svartárkoti þar sem ferðaþjónustuaðilar víðsvegar af landinu koma saman og miðla sinni reynslu og læra af hver öðrum.

Lesa meira...
 

Brúarárskóli á víðavangi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Útikennsla og vettvangsathuganir í skólastarfi njóta vaxandi viðurkenningar sem mikilvægar og gagnlegar kennsluaðferðir. Örn Þorleifsson, kennari við Brúarásskóla, bóndi í Húsey á Fljótsdalshéraði og landgræðsluverðlaunahafi, hefur skipulagt vettvangsferð og útikennslu um jarðfræði, landgræðslu og menningu frá Kollumúla í Jökulsárhlíð til Möðrudals. Markmið verkefninsins er að nemendur öðlist skilning á landinu, jarðfræði og lífríki er viðkemur heimabyggð og tengist búsetu Íslendinga. Einnig að þeir öðlist heilbrigt viðhorf til nýtingar og verndunar lands, læri að umgangast landið og þykja vænt um það. Nemendur eiga að þjálfast í að lesa landið og geta útskýrt hvað er um að vera á hverjum stað, eins og hvort um landeyðingu eða landbætur er að ræða.

Lesa meira...
 

Fræðslumyndband frá Noregi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

Samstarfsaðilar NEED verkefnisins í Noregi hafa búið til stórskemmtilegt myndband um jarðfræðilega sögu Storjord en það svæði er miðpunktur verkefnisins þar í landi.

 

Við hvetjum alla, unga sem aldna til að skoða myndbandið og hafa gaman af.

 
Lesa meira...
 

NEED ráðstefnu á Írlandi frestað

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

 

Eins og glöggir lesendur eflaust vita þá stóð til að hluti hins íslenska NEED hóps héldi til Írlands síðastliðinn mánudag. Vegna óviðráðanlegra ástæðna, eins og eldgosið í Eyjafjallajökli er svo sannarlega, þá var ákveðið að fresta ráðstefnunni fram á haust, n.t.t. 11. – 16. október 2010.

 

Það má með sanni segja að ástæður frestunarinnar séu í anda NEED verkefnisins þar sem að eitt af megin þemum verkefnisins er einmitt náttúruvá.

 
Lesa meira...
 
Síða 1 af 7

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður